Þegar ég var lítill strákur voru legókubbar uppáhaldsdótið mitt. Ég gat dundað mér lengi við að búa til hitt og þetta, þótt í þá daga hafi ekki verið um auðugan garð að gresja í kubbavali - miðað við alla fjölbreytnina nútildags.
Seinna, þegar ég fór sjálfur að ala upp börn, otaði ég gjarnan að þeim legókubbum og oftast þegar ég og blessuð börnin fórum í lególeik endaði það með því að börnin voru löngu farin að gera eitthvað annað þegar ég lá enn og skemmti mér til að setja eitthvað saman úr kubbunum.
Núna sýnist mér að allt gangi út á bíómyndir hjá Legó-fyrirtækinu. Framleiddir eru kassar þar sem líkt er eftir sviðsetningu vinsælla bíómynda, og legókallar búnir til eftir helstu hetjum og skúrkum myndanna.
Hér er til dæmis Batman:
Um daginn las ég í blöðunum að nýjasta þema Legó á þessu sviði væri byggt á ævintýramyndinni Prince of Persia, sem væntanleg er í bíó. Svo skemmtilega vill til að Gísli Örn Garðarsson úr Vesturporti leikur þar stórt hlutverk - "vesírinn" sem ég held að sé einn af vondu köllunum.
Alla vega eru allar líkur á að Gísli Örn sé hér með orðinn legókall!
Það þykir mér afar skemmtilegur frami, og öfundsverður. Það sem ég hefði ekki gefið á mínum yngri árum fyrir að verða legókall!
Hér er Gísli Örn, menn geta reynt að píra augun og sjá hann fyrir sér sem kubbslegan legókall:
Blogg
ÉG VILDI VERA LEGÓKALL!
18:30 › 26. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
