ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.1° 6m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞÝSKIR AUÐKÝFINGAR VILJA BORGA HÆRRI SKATTA

21:00 › 23. október 2009


Hópur þýskra auðkýfinga hefur hafið baráttu fyrir því að skattprósenta þeirra verði hækkuð.


Þeir benda á að í Þýskalandi búi um það bil 2,2 milljónir einstaklinga sem eigi meira en 500.000 evrur, en það er eitthvað tæpar 100 milljónir.

Ef þetta fólk borgaði 5 prósenta aukaskatt í tvö ár, segja talsmenn hópsins, þá mundi það duga til að safna í sjóð sem næmi 100 milljörðum í evrum. Tæplega 2.000 milljarðar króna, ef ég reikna þetta rétt.

Og svo hóflegur skattur mundi þó ekki reynast ofverk neins að borga.

Þennan sjóð mætti svo nota til að draga úr atvinnuleysi, bæta umhverfið og vinna önnur þjóðþrifaverk.

Talsmennirnir segja að það myndi ekki koma í sama stað niður ef hver og einn auðkýfingur borgaði bara svo og svo mikið í góðgerðastarfsemi. Það myndi aldrei nýtast samfélaginu öllu sem sama hætti og skatturinn myndi gera.

Sjá frétt um þetta á BBC hér.

Ekki veit ég hvort hópurinn fær einhverjar undirtektir við kröfum sínum um hærri skatta.

En það væri gaman að vita hvað íslenskum auðkýfingum þætti um svona tillögur.

Einhvern veginn grunar mig að samfélagsleg samkennd þeirra myndi ekki reynast nægjanleg til að þeir vildu taka á sig svona skatt.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?