ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.1° 6m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

LITLA LJÓTA KLÍKAN RÆÐST Á EGIL HELGASON

10:36 › 21. október 2009


Skyldu þeir enn hittast á klíkufundum, hinir innvígðu og innmúruðu í litlu ljótu klíkunni sem réði ferðinni í Sjálfstæðisflokknum nánast fram á þennan dag?

Og skipuleggja næstu aðgerðir?

Svo mætti ætla. Nú virðist til dæmis hafa verið gefin út dagskipun um að herja á Egil Helgason og Silfurþáttinn hans.

Og þeir hafa raðað sér upp til árásar, dátarnir tryggu.

Hannes, Björn Bjarnason, Óli Björn Kárason. Meira að segja Sturla Böðvarsson leggur fram sinn skerf.

Það er fyndið hvað hið heilaga hlutleysi Ríkisútvarpsins er allt í einu orðið þeim ofarlega í huga.

Af því þáttur Egils birtir ekki þá heimsmynd sem þeir vilja umfram allt varðveita.

Heimsmyndina sem þeir máluðu sjálfir.

Heimsmyndina þar sem allt var svo flott og fínt á yfirborðið en hrunið beið undir niðri.

Nú á að mála nýja heimsmynd þar sem hrunið var öllum öðrum en þessari litlu ljótu klíku að kenna, og foringja hennar.

Ein leið þess er að reyna að draga kjarkinn úr Agli og Ríkisútvarpinu.

Auðvitað veit litla ljóta klíkan að það er engin von til þess að Egill verði rekinn, eins og nú síðast Björn Bjarnason fer fram á, en tilgangurinn með árásunum er að hann passi sig betur. Bjóði fleiri fulltrúum klíkunnar í þáttinn sinn. Og færri þjóðhættulegum einstaklingum sem ekki viðurkenna dýrð leiðtogans eina og sanna.

Æ, hvað þetta er þreytandi lið.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?