Undarlega ofsafengin er þessi árás Stefáns Pálssonar á Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra. Ég er alveg hjartanlega sammála honum um að brottvísun hælisleitenda um daginn voru afleit mistök. Vonandi verða þau leiðrétt hið bráðasta.
En Ragna hefur virst fúsari bæði til að vanda sig í starfi, læra nýja hluti og líka viðurkenna ef henni hefur skjöplast heldur en títt er um ráðherra á Íslandi.
"Ég verð líklega bara að gera betur," sem einu sinni var haft eftir henni, er fáheyrð yfirlýsing frá íslenskum ráðherra og í sjálfu sér verulega hrósvert.
Í þessu máli hefur hún vissulega tækifæri til að gera betur.
Að öðru leyti er pistill Stefáns uppfullur af einhverjum undarlegum pólitíkusa-töffaraskap sem maður átti ekki beint von á frá honum.
Og það er meira að segja spurning í hvaða landi sá maður hefur búið undanfarna áratugi sem skrifar hluti eins og þetta:
"Ég leyfi mér að fullyrða að enginn stjórnmálamaður með meira en ársreynslu af alvöru pólitík hefði staðið svona að verki."
Blogg
Í HVAÐA LANDI BÝR STEFÁN PÁLSSON?
12:31 › 21. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
