ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.1° 6m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NÝ MANNESKJA

11:38 › 20. október 2009


Fyrir rétt rúmum 20 árum kynntist ég ungum pilti sem þá var 5 ára.

Það kom fljótt í ljós að þetta var einstakur sómadrengur og það var mér óblandinn heiður þegar ég heyrði hann í fyrsta sinn kalla sig fósturson minn.

Nú er hann fyrir nokkru orðinn fulltíða maður og ævinlega sama valmennið.

Og fyrir fáeinum árum búinn að festa sér stúlku sem býður ekki síður af sér besta þokka.

En þegar þau litlu hjónin fóru að sofa í gærkvöldi lá á milli þeirra splunkuný manneskja.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?