Það hafa margir vakið athygli á þessari furðu á undan mér, en skýring hefur samt engin fengist.
Hvernig stendur á því að sjálfstæðismenn (og jafnvel framsóknarmenn) geta nú setið með grátstafinn í kverkunum og grenjað yfir því að hinir stórfenglegu fyrirvarar sem einhverjir "við" eyddum öllu sumrinu í að semja og samþykkja skuli nú ekki vera allir og óbreyttir í hinu endanlega Icesave-samkomulagi við Breta og Hollendinga?
Því Sjálfstæðismenn samþykktu alls ekki þessa fyrirvara á Alþingi.
Þeir sátu hjá - allir nema Árni Johnsen og svo þessi þarna hávaxni. Þeir voru á móti, félagarnir.
Og framsóknarmenn greiddu allir atkvæði á móti.
Það eru ekki fyrirvarar sjálfstæðismanna og framsóknarmanna, sem nú hefur verið hróflað við.
Svo hvað eru þeir að væla?
Blogg
HINAR ENDALAUSU FURÐUR ICESAVE-MÁLSINS
09:49 › 20. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
