Langmerkilegasta frétt dagsins finnst mér sú að í einu vetfangi hafi vísindamenn fundið 32 nýjar plánetur útí himingeimnum.
Og sumar þeirra eru bara fimm sinnum þyngri en Jörðin okkar. Það þýðir að einhverjar þeirra eru "klettaplánetur" eins og Jörðin, Mars, Venus og Merkúr, en ekki gasblöðrur eins og Júpíter, Satúrnus og félagar.
Á "klettaplánetum" er miklu líklegra að líf geti kviknað, og altént þróast af örverustigi.
Og þar gæti verið vatn, og andrúmsloft af einhverju tagi, og ... og ... og ...
Ein þeirra gæti litið svona út:
BBC segir frá þessu hér.
Minnsta plánetan sem hingað til hefur fundist heitir Gliese 581e. Hún er bara 1,9 sinnum stærri en Jörðin, en hringsnýst að vísu svo nálægt sinni sól að þar getur ekkert líf þrifist.
Þegar maður liggur í drafinu er gott að horfa til himins.
Var það ekki einhvern tíma sagt?
Blogg
MERKILEGASTA FRÉTT DAGSINS
16:13 › 19. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
