Ómar R. Valdimarsson blaðamaður og fréttaritari Bloomberg á Íslandi heldur því fram á Facebook-síðu sinni (sjá hér) að Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins hafi í heila viku setið oná frétt um að loksins, loksins væri farið að rannsaka sölu Baldurs Guðlaugssonar á hlut sínum í Landsbankanum rétt eftir fund með fjármálaráðherra Breta, þar sem rætt var um slæma stöðu bankans.
En Baldur þykist bara hafa lesið um málið í fjölmiðlum!
Þetta er einmitt það sem allir vissu að myndu gerast ef viðkomandi maður yrði ráðinn á Morgunblaðið.
Trúverðugleikinn fer í núll, því Eimreiðarklíkan hugsar fyrst og fremst um sína.
Eins og sú klíka hefur alltaf gert.
Bloggfærsluna sem ég vísa hér í um Eimreiðarklíkuna skrifaði ég fyrir tæpu ári síðan, í desember síðastliðnum.
Blogg
EIMREIÐARKLÍKAN SÉR UM SÍNA
13:48 › 18. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
