16:09 › 17. október 2009
Þar sem ég gekk í rólegheitum eftir hlaupabrautinni í Laugum var verið að sýna leik Manchester United og Bolton. Það þótti mér í fyrstu verra, því ég hefði kosið að sjá mitt lið Liverpool spila við Sunderland.
En Liverpool virðist hafa tapað háðuglega fyrir Sunderland.
Liðið er nú í áttunda sæti Úrvalsdeildarinnar! Níu leikir búnir.
Að svo miklu leyti sem það skiptir máli, þá er löngu orðið tímabært að reka Rafael Benitez. Hugarfar hans er hugarfar minnipokamannsins.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
