Verið svo elskuleg að lesa þetta hér.
Og veitið sérstaka athygli síðustu setningunni hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni:
"Hefur þú engar áhyggjur af því hvernig þetta lítur út fyrir börnin þín í framtíðinni?"
Fyrirgefið fjórtán sinnum, en mér rann kalt milli skinns og hörunds þegar ég las þetta.
Auðvitað getur prófessor Hannes reynt að halda því fram að hann hafi bara átt við að börn Eiríks muni í framtíðinni þurfa að skammast sín fyrir fíflið karl föður sinn af því hann hafi verið svo hryllilega vitlaus að gagnrýna hinn mikla og ástsæla leiðtoga Davíð Oddsson.
En þetta hljómar samt alveg augljóslega eins og argasta hótun upp úr mafíumynd.
"Ég veit hvar þú átt heima. Ég veit hvar börnin þín ganga í skóla."
Eitthvað í þá áttina.
Þetta hljómar sem sagt eins og hótun um að ef Eiríkur láti ekki allri gagnrýni á leiðtogann mikla og eina, þá muni það skaða börnin hans í framtíðinni.
Djöfulinn á Hannes Hólmsteinn með að blanda börnum andmælenda sinna inn í "umræðuna" með þessum hætti?
Þetta er lágkúrulegasta og ómerkilegasta birtingarmynd valdhroka litlu ljótu Davíðsklíkunnar sem ég hef á ævi minni séð.
Og er þó af nógu að taka.
Ég vona að Hannes Hólmsteinn eigi enn þann snefil af manndómi í sér að biðjast þegar í stað og skilyrðislaust fyrirgefningar á þessu.
En hugarfarið sem hér býr að baki er skýrasta sönnun þess að litla ljóta klíkan má ALDREI komast til nokkurra valda aftur.
Blogg
ER VERIÐ AÐ HÓTA BÖRNUM ÞEIRRA SEM VOGA SÉR AÐ GAGNRÝNA?
12:11 › 17. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
