ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.1° 6m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VERSTU MISTÖK Í ÍSLENSKRI FJÖLMIÐLUN?

20:23 › 15. október 2009


Þegar Óskar Magnússon (og Þorsteinn Már Baldvinsson!) réðu Davíð Oddsson sem ritstjóra Morgunblaðsins sagði Óskar í einhverju viðtali að þetta væri gert vegna þess að hann vissi af gamalli reynslu að það væri svo mikil "eftirspurn eftir skoðunum Davíðs Oddssonar".

Þessu flaggaði Óskar óspart þegar hann var að sannfæra "ekkjuna í Vestmannaeyjum", Guðbjörgu Matthíasdóttur, um að leggja svolítið af sínum milljörðum í gjaldþrota flak Moggans.

Í fyrsta lagi þurfti að snúa Moggaflakinu frá daðri við Evrópusambandið, af því það er trúaratriði hjá LÍÚ-auðvaldinu að Ísland megi undir engum kringumstæðum ganga í ESB.

Að vísu er það löngu opinbert leyndarmál að sumir af hinum víðsýnni útvegsmönnum eru komnir á þá skoðun að líklega væri bara ekkert slæmt fyrir þá að Ísland gengi í ESB, en látum það liggja milli hluta.

Guðspjallið skrifaði stjórn LÍÚ og það hljóðar upp á algjöra andstöðu við ESB.

Svo Guðbjörgu Matthíasdóttur var talin trú um að hún ætti að leggja slatta af sínu fé í að halda úti Mogga sem tæki upp harða andstöðu við Evrópusambandið.

Og hún var til í það, einkum þegar Óskar (og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson) töldu henni trú um að þetta væri, auk hins nýja rétttrúnaðar sem Mogginn myndi tileinka sér, mjög góður bissniss í ofanálag.

Því þeir myndu framkvæma það "kúpp" að fá sjálfan Davíð Oddsson til að ritstýra blaðinu.

En ekki bara einhvern dugmikinn blaðamann.

Davíð væri vissulega umdeildur, en inn við beinið elskuðu allir Íslendingar sinn Davíð. Eða elskuðu a.m.k. að hata hann.

Og þótt einn og einn blóðrauður kommúnisti og samfylkingarspunarokkur myndi kannski segja upp blaðinu, þá myndi stærstur hluti þjóðarinnar beinlínis hlaupa spretthlaup út í næstu búð til að kaupa Moggann.

Svo mjög fýsti okkur að fá allt að vita um nýjustu skoðanir Davíðs Oddssonar.

Ég hallast að því að Óskar hafi trúað þessu sjálfur.

Alla vega að Guðbjörg hafi trúað því.

Annars hefði hún varla farið að fleygja í þetta vonlausa dæmi peningum.

Því reyndin er auðvitað sú að fyrir utan blessunarlega lítinn hóp heimastjórnarmanna, þá gæti þjóðinni ekki staðið meir á sama um skoðanir Davíðs Oddssonar á hvort heldur er Evrópusambandinu eða öðrum málum.

Hann getur dedúað við sína leiðara upp úr gömlum dægurlagatextum eða hrækt frá sér ógeði í Staksteinum, en ég held að öllum sé sama.

Þúsundir áskrifenda hafa sagt blaðinu upp.

Og trúverðugleiki Moggans er farinn í hundana.

Núna í dag var tilkynnt að fjórir af dugmestu blaðamönnunum væru á förum.

Sjá hér.

Þeir Þorbjörn Þórðarson og Þórður Snær Júlíusson hafa báðir sinnt viðskiptafréttunum af töluverðum bravúr.

Þeim hefur meira að segja tekist að komast með tærnar þar sem DV hefur hælana um þessar mundir.

Það er vel af sér vikið miðað við allar þær skorður sem ríkt hafa á Mogganum, m.a.s. á tíma Ólafs Stephensens.

En undir Davíð og Haraldi Johannessen vilja þeir ekki starfa.

Áður missti Mogginn fjölda góðra blaðamanna í fjöldauppsögnum, og Ragnhildur Sverrisdóttir, einn reyndasti og flinkasti blaðamaðurinn, sagði upp, og þannig verður ógæfu Moggans allt að vopni.

Sennilega eru þetta verstu mistök sem gerð hafa verið í íslenskri fjölmiðlun, þegar Óskar taldi Guðbjörgu Matthíasdóttur trú um að gífurleg eftirspurn væri eftir skoðunum Davíðs Oddssonar.

Og þau rústuðu með því blaðinu.

Þetta gríðarlega bákn í fjölmiðlun riðar til falls, og vandséð hvað gæti héðan í frá bjargað því.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?