ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.1° 6m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HELVÍTI RÖKLEYSUNNAR: SAMKOMULAG UM ICESAVE NÆST ALDREI!

12:28 › 15. október 2009


Í fréttunum áðan heyrði ég Jóhönnu Sigurðardóttur segja að hún vonaðist til þess að mjög færi nú að styttast tíminn þangað til Icesave-málið leystist.

Mér fannst ég hafa heyrt þetta áður ... jafnvel nokkrum sinnum.

"Nú er mjög að styttast tíminn þangað til Icesave leysist ..."

Og þá rifjaðist upp fyrir mér sú rökfræðilega mótsögn sem kennd er við gríska spekinginn Zenó og fjallar um kapphlaup Akkillesar og skjaldböku einnar.

Akkilles var rómaður fyrir að vera fljótur að hlaupa, raunar kallar Hómer hann oft "hinn fóthvata" ef ég man rétt.

En Zenó sýndi fram á að hann gæti aldrei komist fram úr hægfara skjaldböku, svo fremi sem skjaldbakan fengi svolítið forskot.

Þetta er augljóst ef að ef gáð.

Segjum t.d. að Akkilles leggi af stað 100 metrum frá markinu en skjaldbakan í 50 metra fjarlægð.

Og segjum að Akkilles hlaupi helmingi hraðar en skjaldbakan. Auðvitað er hraði hans hlutfallslega meiri, en þetta dugar til að sýna fram á mótsögnina.


Sem sagt - keppendur eru ræstir og eftir svolitla stund er Akkilles hálfnaður og búinn að hlaupa 50 metra. Þá hefur skjaldbakan lagt að baki 25 metra.

Þegar Akkilles er búinn að hlaupa 25 metra í viðbót er skjaldbakan komin 12,5 metra í viðbót.

Og þegar Akkilles er kominn þá 12,5 metra er skjaldbakan 6,25 metrum framar.

Og er Akkilles hefur lagt þá 6,25 metra að baki er sjaldbakan nú aðeins 3,125 metrum framar.

Og svo framvegis og svo framvegis.




Akkilles færist alltaf nær og nær skjaldbökunni, en skjaldbakan færist alltaf ögn framar og þó bilið styttist sífellt og verði að lokum nánast ekki neitt, þá nær Akkilles aldrei skjaldbökunni.

Hann er lentur í helvíti rökleysunnar; fljótastur í heimi en kemst þó ekki fram úr hægfara skjaldböku.

Ég er farinn að halda samkomulagið í Icesave-deilunni lúti sama lögmáli.

Það færist alltaf nær og nær, alltaf styttist tíminn en það mun samt aldrei nást.

Við Íslendingar erum eins og Akkilles lent í helvíti  rökleysunnar.

Hér munum við dúsa til eilífðarnóns, sífellt að nálgast hið viðsjála samkomulag í Icesave-deilunni en það verður samt alltaf jafn fjarri.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?