Í DV í dag kemur fram að eitthvað um tugur presta berst nú ákaft fyrir því að séra Gunnar Björnsson fái að taka aftur við embætti prests á Selfossi.
Hann var ákærður fyrir ósæmilega hegðun gagnvart stúlkubörnum, sýknaður að mestu, en ljóst er að mikill fjöldi sóknarbarna hans vill ekki sjá hann sem prest aftur.
Prestarnir tíu telja ótækt að séra Gunnar fái ekki að halda starfi sínu fyrst ásakananir gegn honum teljist ekki lögformlega sannaðar.
Þetta eru sömu mennirnir og eru á prýðilegum launum hjá almenningi við að boða trú á einhverja þokukennda veru, hvers tilveru er ekki nokkur leið að sanna - hvorki lögformlega né vísindalega.
Ef þessir prestar telja að Selfyssingar þurfi að sitja uppi með prest sem þeir hafa andstyggð á, af því ekki hefur tekist að SANNA meint afbrot hans, geta þeir þá ekki hunskast til að sanna að sá guð sé til sem þeir lifa góðu lífi á?
Blogg
GETA ÞEIR ÞÁ EKKI HUNSKAST TIL AÐ SANNA AÐ GUÐ SÉ TIL?
07:11 › 14. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
