Sigmundur Davíð formaður Framsóknarflokksins og Höskuldur Þórhallsson lautinant hans berja hausnum við steininn.
Sjá hér og hér.
Það hefur aldrei nein vísbending komið frá Noregi um að menn þar séu tilbúnir að veita Íslandi risalán.
Nema frá einum stjórnmálamanni.
Þvert á móti hafa Norðemnn alltaf og ævinlega sagt mjög skýrt að slíkt lán komi ekki til greina.
En nú vilja framsóknarmenn að við stefnum allri okkar framtíð í hættu út af lýðskruminu í þeim.
Þeir sem halda að allt verði hér í lagi ef við neitum að afgreiða Icesave og fleygjum Icesave út í buskann, þeir ættu að athuga eitt.
Með því eru þeir að taka undir málflutning Davíðs Oddssonar og hirðar hans í Sjálfstæðisflokknum.
Og sú hirð hefur hingað til alltaf reynst hafa rangt fyrir sér.
Davíð gerði Seðlabankann gjaldþrota.
Hann yfirtók Glitni og hélt að það mundi ekki hafa neinar sérstakar afleiðingar fyrir hina íslensku bankana.
Hann hefur alltaf haft rangt fyrir sér síðan efnahagsörðugleikar hófust.
Hlustum ekki á hann.
Né framsóknarmennina.
Eða réttara sagt, af því við erum kurteis: Hlustum, en tökum ekki mark á þeim.
Blogg
TÖKUM EKKI MARK Á ÞEIM
13:14 › 10. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
