Alveg var það furðulegt að þegar forsætisráðuneytið birti kolsvartar greinargerðir um hvað myndi gerast ef við vísuðum Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr landi, þá fóru fréttamenn í fyrstu að eltast við einhverja óánægju í Seðlabankanum um að greinargerð hans skyldi hafa verið birtar opinberlega.
Hvað kom okkur það við?
Var það ekki viðleitni til opinnar stjórnsýslu að birta þetta?
En þeir Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð létu ekki að sér hæða.
Um nýjustu furðuverk Sigmundar Davíðs má lesa hér og ég vona að fréttamenn taki málið upp hið bráðasta.
En þeir félagar eru, með orðum Guðmundar Gunnarssonar hér, "búnir að lýðskrumast svo hátt upp í tré að þeir þurfa hjálp til að komast niður".
Þeir eru samt enn við sama heygarðshornið og tala um "hótunarbréf" og "örþrifaráð ríkisstjórnarinnar" með birtingu á þessum greinargerðum.
Getum við ekki bara sætt okkur við að við erum í svo djúpum skít að við þurfum aðstoð alþjóðasamfélagsins? Og aðstoð fáum við ekki nema afgreiða Icesave!
Af hverju gott fólk í vinstrigrænum er að eltast við pólitísk bellibrögð formanna þeirra stjórnmálaflokka sem komu okkur í þá skítastöðu sem við erum í nú, það skil ég ekki.
Blogg
ÞAÐ SKIL ÉG EKKI
08:38 › 10. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
