ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.1° 6m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ER HANNES HÓLMSTEINN OFSÓTTUR GYÐINGUR?

15:04 › 10. október 2009


Eins og sagt er frá á Pressunni hér lentu þeir Egill vinur minn Helgason og Hannes Hólmsteinn Gissurarson í orðahnippingum á Facebook í morgun.

Eftir að Óskar Magnússon og Þorsteinn Már Baldvinsson réðu húsbónda Hannesar á Moggann og veittu honum þar með nýtt pólitískt líf, þá er Hannes skriðinn úr hýði sínu og fer nú mikinn á vefsíðum.

Í þessum orðahnippingum við Egil telur hann sig t.d. þess umkominn að "fyrirgefa" Agli sem hafi beðið ósigur í rökræðum við hann.

Ég þarf ekkert að hafa nein orð um það þegar helsti forsöngvari útrásarinnar, maður sem síðast haustið 2007 hvatti til þess að gefið yrði í í útrásinni, þykist geta "fyrirgefið" manni sem fjallaði alltaf um útrásina af mikilli tortryggni.

Og hefur átt meiri þátt í því en flestir aðrir að hjálpa okkur að horfast í augu við sannleikann um samfélagið eins og það var orðið.

Það sem vakti hins vegar athygli mína var að tvívegis í þessum Facebook-umræðum líkir Hannes sér við Gyðinga í Þriðja ríki Hitlers.

"... ég hef sömu réttarstöðu í augum Egils Helgasonar og gyðingur hafði í Þriðja ríkinu ..."

Og:

"Egill talar um mig eins og valdhafar í Þriðja ríkinu töluðu um gyðinga."

Sko.

Í fyrsta lagi ...

Hannes talar fyrir hóp manna sem þangað til fyrir skömmu síðar réðu öllu sem þeir vildu ráða í Sjálfstæðisflokknum og í íslensku samfélagi yfirleitt.

Þetta eru mennirnir sem hleyptu útrásinni af stað. Það breytir engu þó Davíð Oddssyni hafi verið persónulega uppsigað við útrásarvíkinga eins og Jón Ásgeir og jafnvel Kaupþingsmenn; hann er samt skilgetinn faðir útrásarinnar.

Að ekki sé minnst á einkavæðinguna.

Þetta var hópur manna sem naut valdanna út í ystu æsar, og misnotaði þau oft.

Markviss viðleitni hópsins var að koma sér og vinum sínum fyrir alls staðar í opinberri stjórnsýslu á Íslandi.

Mörg dæmi eru hvernig sett var ofan í við þá sem ekki féllu í kramið hjá klíkubræðrum.

En hinum hampað sem voru "í talsambandi" við klíkuna, eða "innmúraðir og innvígðir" eins og það var orðað.

Það er þessi hópur sem ber mesta ábyrgð á hruninu.

Ekki aðeins með því að leyfa bönkum útrásarmanna að vaxa okkur langt upp fyrir höfuð, heldur líka með ómögulegum ákvörðunum á öllum sviðum efnahagsmála.

Allt frá því hvernig umræður um nýja mynt og peningastefnu voru ævinlega kveðnar í kútinn og til þess hvernig Davíð Oddsson gerði Seðlabankann gjaldþrota.

Ef að þessi hópur ætlar nú að fara að líkja sér við Gyðinga í Hitlers-Þýskalandi, þá er það merki um jafn mikla firringu og þegar Ármann Þorvaldsson auðkýfingur og bankastjóri líkti sér við fátæklingana á Ellis-eyju, sjá hér.

Að lítil og harðsvíruð valdaklíka, sem hefur keyrt heilt þjóðfélag á slig, skuli telja sig í sömu stöðu og Gyðingar sem nasistar í Þýskalandi drápu í milljónavís, það er svo geggjað að ég á eiginlega ekki eitt einasta orð.

Hannes Hólmsteinn, sem er sögufróður maður, á að vita betur.

Og það er ekki hægt að segja að þetta sé á neinn sambærilegt, það er til dæmis bara augljóst bull að Egill tali um Hannes eins og nasistar um Gyðinga.

En ósvífnin ríður ekki við einteyming á þessum bæ.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?