Ég hreinlega verð að skjótast hér inn í örstutta stund úr bloggleyfi mínu til að óska rannsóknarnefndinni góðs gengis í störfum sínum.
Eins og ég margtók fram hér á Trésmiðjunni hefði ég kosið að svona nefnd væri undir algjöru forræði útlendinga.
En fyrst það varð ekki í þessari atrennu þá vonum við öll að þessari nefnd takist vel upp. Og höfum fyrirfram ekki ástæðu til að ætla neitt annað.
Að svo mæltu hvet ég alla til að mæta á Austurvöll klukkan þrjú.
Oft var þörf en nú er nauðsyn!
Fyrst núna virðist eiga að rannsaka hvort gömlu bankaeigendurnir hafi tekið stöðu gegn krónuræflinum okkar. Og það þurfti Steingrím J. Sigfússon til að fá Evrópuráðið til að fara í saumana á framferði Breta!
Blogg
GANGI YKKUR VEL!
09:22 › 10. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
