Þegar við Egill Helgason unnum saman á Helgar-Tímanum í gamla daga fundum við upp á að veita "ljós vikunnar" þeim sem hafði gert eða skrifað eitthvað óvenju heimskulegt þá vikuna.
Þeir sem "unnu" þennan "heiður" fengu kerti í verðlaun, en fáir urðu til að sækja kertið sitt.
Ef ég man rétt var Gestur Guðmundsson félagsfræðingur sá fyrsti sem náði í kertið sitt, en ég man ekki hvað hann hafði til saka unnið að mati okkar unglinganna.
Ég á varla von á að Árni Mathiesen fari sjálfviljugur til Ameríku til að ná í verðlaunin sín hjá Huffington Post en vonandi splæsa forráðamenn vefsíðunnar í flugfar til Íslands til að afhenda verðlaunin.
Það væri eins og viðeigandi punktur yfir i-ið í niðurlægingu okkar (sem ætluðum að verða fjármálamiðstöð heimsins) að sjá fjármálaráðherra okkar taka við verðlaunum sem "versti bankamaður heims".
Ég mundi mæta á þá verðlaunaafhendingu.
Blogg
TEKUR ÁRNI VIÐ VERÐLAUNUNUM?
10:50 › 8. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
