Heill og sæll Illugi,
ESB er að mörgu leyti byggt á leikreglum hins kapítalíska hagkerfis og þar hefur verið mikil hægrisveifla undanfarna áratugi sem er eðlilegt - hún fer saman við þá hægrisveiflu sem verið hefur í aðildarríkjum sambandsins.
Það er sú hægrisveifla sem birtist t.d. í Bolkensteintilskipuninni alræmdu þar sem bjóða átti út nánast alla opinbera þjónustu, t.d. almenningsbókasöfn, ýmsa þjónustu innan heilbrigðiskerfisins osfrv og það eru sömu gildi sem birtast hjá Evrópudómstólnum, t.d. í Vaxholm-dómnum sem má kalla aðför að kjörum verkafólks og réttlætir ömurleg kjör ýmissa farandverkamanna að austan sem hafa leitað vinnu vestar í álfunni.
Hernaðarþróun ESB er líka áhyggjuefni en bandalagið hefur á undanförnum árum unnið að sameiginlegri utanríkisstefnu (sem eru hluti Lissabon-sáttmálans) og því miður einkennist hún nokkuð af vígvæðingu.
Þó að innan ESB hafi verið unnið gott starf að mörgu leyti í umhverfismálum (einkum loftslagsmálum þá teljum við að ganga mætti lengri í umhverfismálum, ekki síst hvað varðar grænni stefnu í landbúnaði og sjávarútvegi svo eitthvað sé nefnt en ESB hefur rekið vægast ósjálfbæra stefnu í þessum málaflokkum.
En það er erfitt að gera grein fyrir þessu í stuttu máli - og að sjálfsögðu eru kostir og gallar við aðild. Þess vegna ræddum við á flokksráðsfundinum um möguleikana á tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu og skjóta málinu þannig til þjóðarinnar og stuðla um leið að umræðu um það.
Hvað varðar gjaldmiðilsmálin þá viljum við taka þau til sérstakrar athugunar eins og kom líka fram á fundinum og veltum þar upp nokkrum möguleikum. En af því að þú segir að aðild að ESB snúist ekki síst um gjaldmiðilsmál - þá snýst hún um það en líka mjög margt annað...
Með hlýjum kveðjum
Katrín.
Blogg
SVAR KATRÍNAR JAKOBSDÓTTUR
17:02 › 8. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
