Það er alveg rétt hjá Björgvini Val að kosningabarátta um það að sækja um aðild að ESB yrði algjört rugl.
Tímaeyðsla og peningaeyðsla, ekkert annað.
Ekkert málefnalegt kæmi út úr þeirri kosningabaráttu.
Ég veit ekki hvað ég þarf að segja þetta oft:
Við verðum að fá að vita hvað aðild að ESB hefur í för með sér.
Við fáum ekki að vita það með þrefi hér heima.
Við þurfum að sækja um.
Sækja um af fullri alvöru og ráðin í að fá sem allra bestan díl.
En ef við fáum ekki nógu góðan díl, þá fellum við aðildina í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Einfalt mál.
Lýðræðið að verki.
Þeir sem vilja umfram allt ekki láta sækja um, hvort sem þeir tilheyra Heimastjórnarflokknum, Sjálfstæðisflokknum eða Vinstri grænum, vilja ekki að lýðræðið fái að hafa sinn gang.
Þeim er svo illa við ESB að þeir vilja allt til vinna að koma í veg fyrir aðildarviðræður.
Fyrr en þá kannski einhvern tíma ef til vill hugsanlega.
Einfaldlega af því þeir eru hræddir um að íslenska þjóðin kunni að taka þá ákvörðun að vilja ganga til liðs við bandalagið.
Þeir eru hræddir við lýðræðið.
Það kemur ekki á óvart varðandi Heimastjórnarflokkinn.
Það kemur meira á óvart að það unga fólk sem gengið hefur til liðs við VG að undanförnu skuli taka undir lýðræðisóttann með þessum hætti.
Ótta sem Steingrímur J. er haldinn, en ekki t.d. Ögmundur Jónasson.
Blogg
ÓTTI VG VIÐ LÝÐRÆÐIÐ
00:26 › 8. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
