ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

OPIÐ BRÉF TIL KATRÍNAR JAKOBSDÓTTUR

15:42 › 8. desember 2008


Eftirfarandi orðsendingu sendi ég til Katrínar Jakobsdóttur varaformanns Vinstri grænna fyrr í dag:

"Sæl Katrín.



Á dv.is sá ég eftirfarandi haft eftir þér:



„Við teljum að aðild að Evrópusambandinu samrýmist ekki okkar stefnu um
sjálfbæra þróun, félagshyggju, kvenfrelsi og friðarstefnu. Við höfum
séð aðra stefnu innan ESB ..."



Af því að ég er sérlegur áhugamaður um þær björgunarleiðir sem okkur
Íslendingum standa nú til boða (og af þeim er ESB óneitanlega ein sú
helsta) þá þætti mér vænt um að fá frá þér stutt og greinargóð svör við
eftirfarandi spurningum:



Á hvern hátt samrýmist aðild að ESB ekki sjálfbærri þróun?



Á hvern hátt samrýmist aðild að ESB ekki félagshyggju?



Á hvern hátt samrýmist aðild að ESB ekki kvenfrelsi?



Á hvern hátt samrýmist aðild að ESB ekki friðarstefnu?



Og ennfremur:



Þar eð möguleg aðild að ESB snýst ekki hvað síst um gjaldmiðilsstefnu
Íslendinga væri gott að fá að vita hvaða gjaldmiðil þú vilt hafa á
Íslandi í framtíðinni?



Tekið skal fram að þar sem ég held úti svolítilli bloggsíðu áskil ég mér rétt til að birta svör þín þar.



Með vinsemd og virðingu,



Illugi Jökulsson"



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?