ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

LÝÐRÆÐIÐ & VINSTRI GRÆNIR

11:49 › 8. desember 2008


Í tjásu einni hér aðeins fyrir framan er ég sagður hafa undarlegar hugmyndir um lýðræðið.

Af því ég hrópa ekki húrra fyrir þeirri "lýðræðislegu" leið VG í Evrópumálum að einhvern tíma verði þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Íslendingar skuli sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Mér finnst þetta bara vera tímaeyðsla og til þess hannað að tefja mögulega inngöngu okkar í ESB.

Og ég hef ekki undarlegar hugmyndir um lýðræðið.

Best ég stafi þetta eina ferðina enn, þó ég sé búinn að hamra á því oft og mörgum sinnum nú þegar.

Það er okkur Íslendingum algjör nauðsyn að fá sem fyrst að vita hvort aðild að ESB henti okkur eða ekki.

Ég tel líklegra en ekki að aðild muni henta okkur, en ég er alls ekki 100% viss.

Við þurfum hinsvegar að fá að vita þetta.

Og hvaða kostir standa okkur til boða mun aðeins koma í ljós í alvöru aðildarviðræðum. Rifrildi hér heima mun ekki skila neinu. Báðir aðilar munu geta vitnað í sannfærandi stuðningsmenn, skýrslur og álit, og allt verður það gott og gilt í sjálfu sér, en mun ekki skila okkur sentimetra nær niðurstöðu.

Aðeins aðildarviðræður geta fært okkur þá niðurstöðu.

Eftir að við höfum reynt að ná öllu því fram sem okkur passar í aðildarviðræðum.

Um þá niðurstöðu verða svo greidd atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu, að  sjálfsögðu.

Hvort heldur verður ofan á, þá tel ég að okkur liggi á að komast að niðurstöðu.

Annaðhvort þurfum við að komast sem fyrst í ESB, ef það hentar okkur.

Eða við þurfum að hætta að þrefa um það, ef það hentar okkur ekki.

Mér finnst þetta algjörlega augljóst.

Þess vegna er það sem ég fell ekki í stafi yfir því lýðræði að hafa kosningar um hvort við skulum sækja um aðild.

Kosningar eru í þessu tilfelli leið til að tefja lýðræðið, ekki auka veg þess.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?