ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KVEÐUM NIÐUR SPILLINGUNA - EÐA SÖGUSAGNIRNAR

13:21 › 8. desember 2008


Þær eru orðnar stórskaðlegar, allar hinar endalausu sögusagnir sem nú ganga um að vondir peningamenn séu á kreiki í bönkunum að hirða fyrirtæki ódýrt.

Ný spilling sé grasserandi.

Kannski er eitthvað hæft í þessu, kannski eru þetta ýkjur. Ég veit það ekki.

En sögusagnirnar eru í sjálfu sér hættulegar. Þær draga stórkostlega úr því trúnaðartrausti sem menn staglast á að eigi að byggja upp að nýju í samfélaginu.

Stjórnvöld og/eða bankarnir verða að finna leið til að opna dyr sínar nógu mikið til að fólk viti hvað er að gerast.

Það verður annaðhvort að stoppa spillinguna, eða kveða niður sögusagnirnar.

Almennilega.

Það dugar því miður ekki að Björgvin G. Sigurðsson eða einhver komi fram öðruhvoru og segi okkur bara að allt sé með felldu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?