ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVÍLÍK HEIMSKA!

08:11 › 8. desember 2008


Össur Skarphéðinsson upplýsti í þættinum Mannamál um helgina að til hefði staðið að stofna "fjárhagsráð" fjögurra ráðherra sem hefði átt að hafa annast "björgunarstörfin" eftir hrunið með hjálp æðstu embættismanna.

Hann sagði að Samfylkingin hafi komið í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn gerði Davíð Oddsson Seðlabankastjóra að einum æðsta manni ráðsins.

Lét Sjálfstæðisflokkurinn sér í alvöru detta það í hug?!!

Það sýnir þvílíka heimsku, þvílíkt tillitsleysi í garð skoðana almennings í þessu landi, þvílíkt (já!) siðleysi að maður verður eiginlega orðlaus.

En burtséð frá Davíð er þetta ráðherraráð (!!) til marks um lítið hugmyndaflug.

Nokkrir ráðherrar með helstu embættismenn sér til hjálpar ...!

Örugglega Baldur Guðlaugs líka.

Getur þessi ríkisstjórn ekki áttað sig á því að það þarf utanaðkomandi fólk til "björgunarstarfanna", ekki bara þetta sama gamla lið sem kom öllu á kaldan klaka?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?