11:18 › 8. desember 2008
Ég verð nú að taka upp hanskann fyrir alla mína góðu vini í hreyfingu Vinstri grænna.
Hvað á það að þýða hjá ákveðnum hópi að láta eins og það sé til vitnis um eitthvað voðalegt samsæri að stuðningsmenn Vinstri grænna séu á Austurvelli og víðar þar sem mótmælt er ráðleysi stjórnvalda?
Ég er persónulega ekki sammála VG um afstöðu til ESB, en æsingurinn sem brýst út gegn VG stundum er fáránlegur.
Ef vinstri grænir eru verstu sökudólgarnir sem menn koma auga á í íslensku samfélagi nú, þá sjá menn nú ekki mikið í kringum sig.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
