ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ER ÉG "ÁRÓÐURSMEISTARI SAMFYLKINGARINNAR"?

14:24 › 8. desember 2008


Í tjásu hér einhvers staðar að framan skrifar "Haraldur" að ég bloggi "eins og áróðursmeistari Samfylkingarinnar" af því ég er sífellt að reka áróður fyrir því að Ísland sæki um aðild að ESB.

Svo við fáum að vita í eitt skipti fyrir öll hvort sú aðild hentar okkur.

"Haraldur" hefur vit á að hafa "eins og" fyrir framan "áróðursmeistara Samfylkingar", og reyndar kippi ég mér ekkert upp við þetta þótt ég bloggi eingöngu á eigin vegum en ekki Samfylkingar. Og ég var prýðilega sáttur við tjásu "Haraldar" að öðru leyti.

En þetta varð mér samt tilefni til að hugsa:

Mikið erum við öll föst í viðjum flokkakerfisins. Maður sem hefur ákveðna skoðun er strax tengdur við einhvern flokk sem hefur sömu eða svipaða skoðun.

En flokkurinn kemur mér ekki hætishót við. Ég vil helst fá að hafa mína skoðun í friði.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?