Sæl Katrín,
og þakka skjót svör. Það mættu ýmsir taka sér til fyrirmyndar.
Mér þykir reyndar miður að spurningum mínum svarar þú ekki beint.
Ég verð því að ítreka þær. Hvernig samrýmist ESB ekki sjálfbærri þróun, félagshyggju, kvenfrelsi og friðarstefnu?
Sérstaklega finnst mér undarlegt að þú svarar ekki spurningunni um hvernig aðild að ESB samrýmist ekki stefnu VG um kvenfrelsi. Það fullyrtir þú þó með berum orðum.
Gott væri að fá svar við því. Þar sem ég veit að kvenfrelsismál eru þér hugleikin trúi ég því illa að þú hafir bara slett þessu svona fram, án þess að nein sérstök merking búi að baki. Þar væri illa farið með göfugt málefni.
Hugleiðingar þínar um markaðshyggju ESB, viðhorf til verkalýðsmála og utanríkisstefnu eru góðra gjalda verðar en kveikja tvær spurningar til viðbótar:
Ef þú álítur að innan ESB þrífist of skefjalaus markaðshyggja til að almennilegt velferðarþjóðfélag geti afborið það, veistu af hverju okkar góðu frændur Svíar hafa ekki kvartað meira undan niðurbroti velferðarkerfis síns eftir að þeir gengu í ESB?
Og: Þar sem þú telur að viðleitni til sameiginlegrar utanríkisstefnu ESB sé áhyggjuefni úr því þar votti fyrir "vígvæðingu", telurðu þá ekki einsýnt að við Íslendingar segjum okkur úr Sameinuðu þjóðunum, sem sífellt leitast við að tala einum rómi í mikilvægustu málum og er hernaðarbandalag í aðra röndina?
Með bestu kveðjum.
- - - -
Svar Katrínar við þessu bréfi er svo að finna hér.
Blogg
ANNAÐ BRÉF TIL KATRÍNAR JAKOBSDÓTTUR
19:22 › 8. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
