ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AF ÞVÍ AÐ STEINGRÍMUR VILDI ÞAÐ!

09:37 › 8. desember 2008


Áhersla Vinstri grænna á að við skulum umfram allt standa utan við ESB gerir það líklega að verkum að Samfylkingin neyðist til að binda lengur en ella trúss sitt við Sjálfstæðisflokkinn.

Það virðist léttara að hnika honum til þeirrar lífsnauðsynlegu ráðstöfunar að sækja um aðild að ESB heldur en VG.

Hin tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðsla sem VG fer fram á er svo þung í vöfum að það er ekki púkkandi upp á þá hugmynd.

Enda er hún bara sett fram af hálfu Steingríms J. til að tefja.

Skrýtið að unga fólkið í VG skuli fylgja Steingrími í blindni í þessu máli.

Hefur það ekki fyrir augunum hörmuleg dæmi um hve varasamt er að treysta hinum "sterku leiðtogum"?




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?