Jacque Fresco heitir amerískur maður sem mjög er haldið á lofti í seinni Zeitgeist-myndinni, en um Zeitgeist-myndirnar er fjallað í nýja SKAKKA TURNINUM eins og ég hef þegar vakið athygli á!
Ég viðurkenni fúslega að ég hef vægast sagt ekki mikla trú á hinum umfangsmiklu samsærum sem Zeitgeist fjallar um, og ég held að Jacque Fresco muni ekki bjarga heiminum með "Venusar-fræðum" sínum.
Eitt athyglisvert hef ég samt séð haft eftir honum.
"Í byrjun seinni heimsstyrjaldar áttu Bandaríkin bara kringum 600 almennilegar orrustuflugvélar. Við vorum snöggir að vinna bug á þeim skorti með því að framleiða 90.000 flugvélar á ári.
Spurningin í upphafi stríðsins var: Eigum við nóga peninga til að framleiða það sem við þurfum til að heyja stríðið?
Svarið var: Nei, við eigum hvergi nærri nóg af peningum. Og heldur ekki gulli.
En við áttum nóg af hráefnum.
Það voru fyrirliggjandi hráefni sem gerðu Bandaríkjunum kleift ná því framleiðslustigi sem þurfti til að vinna stríðið."
Maðurinn bendir sem sagt á að aðgangur af hráefnum skipti þegar til lengri tíma er litið meira máli en aðgangur að peningum. Því vilji menn gleyma, nema helst á stríðs- eða hörmungartímum.
Það er ágæt ábending. En í þessu tilfelli þarf líka að benda á menntun og mannauð sem "hráefni" sem geti bjargað fólki í peningaleysi, t.d. í hinni íslensku kreppu.
Blogg
ZEITGEIST OG ÍSLENSKA KREPPAN
14:37 › 7. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
