ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

Á TALI MEÐ ÓLAFI RAGNARI

09:35 › 7. desember 2008


Þegar ég var úti að keyra í gær heyrði ég Loga Bergmann vera að lesa sjónvarpsfréttirnar í útvarpinu.

Það var kynnt frétt um að símareikningar á Bessastöðum væru háir.

Svo byrjaði fréttin.

"Símareikningar Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum nema að meðaltali nítján þúsund krónum ..."

Hvaða, hvaða, hugsaði ég í snarheitum.

Nítján þúsund krónur á mánuði er vissulega frekar svona í hærra lagi fyrir venjulegt heimili. En þó ekkert svakalegt.

Og mér auðnaðist líka tími til að hugsa í kúnstpásu Loga Bergmanns: Er nú pirringurinn í garð Ólafs Ragnars orðinn svo mikill að Stöð 2 heldur að það sé einhver ægilegur skandall að forsetaembættið sé með nítján þúsund króna símareikning á mánuði.

"... á dag," hélt Logi Bergmann áfram.

Auðvitað veit ég að þessar tölur eiga við alla starfsmenn embættisins en ekki bara Ólaf Ragnar sjálfan.

En samt.

Á dag!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?