ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

RÚSSNESKA BYLTINGIN Á ÍSLANDI

12:21 › 7. desember 2008


Þeir sem stóðu fyrir frönsku byltingunni og þeirri rússnesku gerðu sömu mistökin.

Þeir reyndu að laga ástandið án þess að hugsa hlutina upp á nýtt.

Án þess að skera um of á tengslin við hina spilltu fortíð sem fólkið hafði risið upp gegn.

Í frönsku byltingunni var talið allt í lagi að Loðvík 16. væri áfram við völd, svona að nafninu til, amk.

Í rússnesku byltingunni töldu Kerenskí og menn hans að vísu að Romanov-hyskið yrði að fara frá, en þeir vildu fara mjög varlega í að umbylta samfélaginu.

Hvorttveggja misheppnaðist.

Róttæklingar tóku völdin af fyrstu byltingarmönnunum í Frakklandi sem leiddi til Ógnarstjórnarinnar. Fallöxin fékk nóg að starfa.

Í Rússlandi var alþýðan sáróánægð með íhaldsemi og varkárni Kerenskís og félaga, sem gerði Lenín og bolsévíkum hans kleift að ræna völdum.

Ríkisstjórn Íslands er að endurtaka þessi sömu mistök, er ég smeykur um.

Með því að halda dauðahaldi í leifarnar af gamla sýsteminu.

Auðvitað mun fallöxi seint verða reist á Austurvelli, né vopnuð árás verða gerð á Svörtuloft.

En það er vissulega hætt við að trénaður hugsunarháttur ráðamanna leiði til þess að öfgar fari vaxandi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?