ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KÆRA YOKO

10:10 › 7. desember 2008


Þeir í borgarkerfinu sem eru í sambandi við Yoko Ono út af friðarsúlunni í Viðey vildu kannski vera svo elskulegir að koma þessu til hennar í snarhasti. Mér er fúlasta alvara.


- - - -


Kæra Yoko.

Eins og þú veist vafalaust er efnahagur Íslendinga í rúst eftir hrun allra stærstu íslensku bankanna í byrjun október.

Þetta hefur þegar haft mjög slæmar afleiðingar fyrir fjárhag stórs hluta landsmanna og á eftir að versna enn.

Jafnframt hefur hið sálræna áfall verið afar þungbært fyrir þjóðina.

Fáeinum dögum eftir hrunið var kveikt á friðarsúlunni í Viðey.

Ég ætla ekki að þykjast tala fyrir aðra en sjálfan mig, en á ferðum mínum um Reykjavík í skammdeginu hefur ljósgeisli friðarsúlunnar verið mér ósvikin upplyfting. Verði slökkt á henni mun höfuðborg Íslands verða töluvert einmanalegri staður.

Til stendur að slökkva á súlunni á morgun, mánudag, en þá er dánarfægur Johns Lennons. Mér er tjáð að kveikja eigi á henni aftur á vetrarsólstöðum og láta hana loga fram yfir hátíðar og áramót, en þá verði síðan aftur slökkt á henni.

Það er hér með mín fróma ósk að loga megi á súlunni samfellt þangað til sól fer að hækka á lofti.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?