ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BYLTINGARFLOKKUR ÍSLANDS

16:22 › 7. desember 2008


Samfylkingin treystir á að stuðningur við Evrópusambandsaðild verði það sem bjargi flokknum frá refsingu í kosningunum sem fram munu fara í vor.

Refsingu fyrir að hafa ekki brugðist við fyrir bankahrunið þótt flokkuinn sæti í ríkisstjórn í 16 mánuði.

Og refsingu fyrir fáránlega linkind sem Sjálfstæðisflokknum hefur verið sýnd eftir bankahrunið.

Altso, þegar kosningar fara fram, þá muni allir sem vilja aðild að ESB fylkja sér um Samfó.

Kannski ekki allir glaðir í bragði, en aðrir kostir séu varla fyrir hendi.

Sjálfstæðisflokkur Geirs Haarde verður þá kannski búinn að skipta um skoðun í ESB-málum en mestur hluti raunverulegra ESB-sinna mun vart vilja kjósa hann.

Hugsar Samfylkingin.

Svo hún situr uppi með pálmann í höndunum.

Furðuleg ragmennska Vinstri grænna í Evrópumálum, sem opinberast í dag, er því sem ljúf músík í Samfylkingareyrum.

En Samfylkingin áttar sig ekki á því að nú munar ekki nema því sem munar að upp rísi nýr flokkur.

Vafalaust verður það Evrópusinnaður flokkur, þar sem þeir sem eru á móti Evrópusambandinu munu finna sér vettvang í VG eða Þjóðarflokki Davíðs og Styrmis og Guðna, eftir því hvort þeir telja sig hægri eða vinstri sinnaða - þó það skipti raunar litlu máli í þessu sambandi.

Hinn Evrópusinnaði Byltingarflokkur Íslands ... hverjir gætu skipað hann?
Ég hef svo sem velt einhverju þessu líku fyrir mér áður, en nú er komið að því að skipa flokkstjórn, ekki ríkisstjórn.

Þessari spurningu er sérstaklega beint til Rip, Rap og Rup, en guðvelkomið að aðrir svari líka.

 





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?