Skrípaleikurinn með "núll prósent aðvörun" Davíðs Oddssonar heldur áfram.
Hann segist hafa varað Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu við því í júní að núll prósent líkur væru á að bankarnir lifðu.
Hvorugt þeirra kannast við þessa aðvörun, enda nýbúin að fá í maí það mat Seðlabankans að staða bankanna væri ágæt.
Á bls. 6 í Fréttablaðinu er löng frétt þar sem leitast er við að grafa upp hvort einhverjar breytingar hafi orðið frá maí og fram í júní - eða var það kannski í júlí sem fundurinn átti sér stað?
Eða var fundurinn kannski bara símtal?
Og hvað var þá sagt?
Æ, ég man það ekki, segir Geir bara.
Eigum við að trúa því að ef Seðlabankastjóri þjóðar hringdi í forsætisráðherra þjóðar og segi honum að "núll prósent líkur" séu á að bankakerfi þjóðarinnar lifi af, þá bara gleymi forsætisráðherrann því orðalagi?!
Mörg er deyfð Geirs, en þessu trúi ég samt ekki.
Nei, Davíð er auðvitað bara að ljúga þessu. Það kom aldrei nein konkret aðvörun frá honum. Þvert á móti hafði Seðlabankinn gefið bönkunum heilbrigðisvottorð.
En Geir bara getur ekki sagt gamla foringja sinn fara með fleipur. Frekar varpar hann grunsemdum um fáránlegt minnisleysi á sjálfan sig!
Og þjóðin þarf að þola þennan skrípaleik og tímaeyðslu æðstu ráðamanna.
Þeir ættu að vera að bjarga illa stöddu fólki, en eyða öllum tímanum í að bjarga eigin orðstír.
Sveiattan!
Allir á Austurvöll!
Blogg
TÍMANUM EYTT Í AÐ BJARGA EIGIN ORÐSTÍR
09:28 › 6. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
