Ég er ekki mjög hrifinn af því að endursegja fréttir hér á Trésmiðjunni. En langar samt að vekja athygli á frétt á blaðsíðu 20 í Fréttablaðinu í dag.
Þar segir frá fundi í Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga, þar sem þau héldu erindi, Katrín Ólafsdóttir og Guðrún Johnsen lektorar við HR og Jón Daníelsson dósent við London School of Economics.
Þau eru öll fólk sem ríkisstjórnin ætti að leita ráða hjá á þessum erfiðu tímum. Kannski ekki síst Jón með reynslu sína frá Bretum (fjandmönnum vorum!), auk þess að hafa (eins og Guðrún) unnið hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Jón hefur vakið nokkra athygli að undanförnu fyrir skörulegar yfirlýsingar í fjölmiðlum um ýmsa þætti kreppunnar. Vafalaust hefur Jón ekki alltaf rétt fyrir sér, frekar en aðrir, en hann er þó klárlega maður sem víðsýn stjórnvöld ættu að leita ráða hjá.
En hve oft hafa stjórnvöld leitað til Jóns?
Aldrei.
Og ekki heldur leitað til neinna sem hann þekkir.
Jón orðaði það svo að stjórnvöld á Íslandi væru að "leika einleik" en skýldu sér svo bak við AGS þegar aðgerðir væru gagnrýndar. Og hann dró í efa að AGS hefði lagt til þau svakalegu gjaldeyrishöft sem nú er búið að innleiða.
Í fréttinni kemur einnig fram það álit hinna þriggja frummælenda að svo virðist sem stjórnvöld væru "að reyna að vinna sig ein og óstudd úr þeirri klemmu sem upp sé komin í efnahagsmálum. Þar væru þau á villigötum ..."
Vissulega. Það er mjög uggvænleg tilhugsun að nú þegar þarf að opna dyr, innleiða nýja hugsun, frjóar hugmyndir, þá séu ríkisstjórn og Seðlabanki að pukrast út í horni með örfáa misvitra ráðgjafa.
Opnið upp á gátt! Þetta er ekki ykkar einkamál, ríkisstjórn og Seðlabanki.
Loft, loft, gefið lífsanda loft!
Blogg
AÐ ÞIGGJA ENGIN RÁÐ
10:47 › 6. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
