ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

RUGL OG ÞJÓÐSÖGUR NÁHIRÐARINNAR

12:10 › 5. desember 2008


Eins og venjulega er hálft samfélagið farið að þrefa um hvað Davíð sagði hvenær.

Náhirðin er nú önnum kafin við að koma þeirri þjóðsögu á að hann hafi alltaf varað við útrásinni.

Það er bara rugl.

Hann beinlínis stóð fyrir útrásinni, þó hann hafi svo verið á móti sumum útrásarvíkingum.

Sjá til dæmis þetta viðtal svo seint sem í nóvember í fyrra við helsta skutilsvein náhirðarinnar. Hannes Hólmsteinn talar þarna fyrir munn meistara síns, þegar hann dásamar fyrirvaralaust gríðarlegan vöxt bankanna.

En nú gargar Hannes á torgum um að Davíð hafi sýknt og heilagt "varað við" útrásinni og vexti bankanna.

Nú hljóðar ný þjóðsaga náhirðarinnar þannig að allt þetta ár hafi aumingja Davíð varað við og varað við en enginn viljað hlusta á þessa grátandi Kassöndru.

Undarlegt að enginn man eftir þessum aðvörunum. Ekki einu sinni Geir Haarde.

Og í maí birti Seðlabankinn heilbrigðisvottorð íslenska bankakerfisins.

Gæti einhver bent mér á hvernig það hljóðaði orðrétt?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?