Það er hægðarleikur að reka venjulega launþega eða lækka hjá þeim launin.
En að lækka laun æðstu embættismanna er alveg roooooosalega flókið.
Og eftirlaunalögin!
Árum saman óx það meira að segja hinum knáa Birgi Ármannssyni í augum að leiðrétta þann ósóma.
Þegar loks var tilkynnt að það stæði til, þá var samt ekki hægt að færa efitrlaun þingmanna og æðstu embættismanna til samræmis við kjör venjulegs fólks í landinu.
Þeir eru eftir sem áður á betri kjörum.
Fyrir nú utan að frumvarpið um þessa "leiðréttingu" er ekki enn komið fram, hálfum mánuði eftir að Geir Haarde og Ingibjörg boðuðu það.
Það er örugglega roooooooosalega flókið að semja þetta frumvarp.
Blogg
OFBOÐSLEGA ER SUMT FLÓKIÐ
11:19 › 5. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
