ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FASTIR Í EIGIN RASSI

15:44 › 5. desember 2008


Fyndið stundum hvað sjálfstæðismenn eiga erfitt með að komast út úr rassinum á sjálfum sér.

Matti Vanhanen forsætisráðherra Finna hefur beðið ESB að búa sig sem best undir aðildarumsókn Íslendinga, svo það geti tekið landsmenn stuttan tíma að ganga í ESB, ef það verður niðurstaðan.

Þetta er vinarbragð hjá Vanhanens, enda er það augljóst mál að ef við samþykkjum að ganga í ESB, þá er langbest fyrir okkur að komast þangað sem fyrst.

En fjöldinn allur af sjálfstæðismönnum á netinu er rasandi yfir þessari "móðgun".

"Hvað er þessi vindhani að derra sig?" spyr einn.

"Frekja og yfirgangur Finna," segir annar.

"Frekleg íhlutun í málefni annars ríkis," segir sá þriðji.

Og sá fjórði segir að þetta sé lítilsvirðing ... ekki við íslensku þjóðina ... ekki við vilja þjóðarinnar ... ekki einu sinni við Alþingi Íslendinga ...

... heldur sé þetta lítilsvirðing við LANDSFUND SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS!


Að hann Vanhanen skuli ekki hafa hugsað út í það!







ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?