Ég sá í einhverri skoðanakönnun að stuðningur við aðild Íslands að Evrópusambandinu virtist hafa minnkað svolítið þótt meirihluti væri enn fyrir hendi. Og mjög mikill meirihluti vildi taka upp evru.
Í því sambandi langar mig að fá hér sjónarmið þeirra sem eru á móti ESB.
Af hverju eru menn það?
Ef menn segja sem svo: "Við megum aldrei missa yfirráð yfir auðlindinni!" þá þætti mér vænt um að menn svöruðu því um leið að hve miklu leyti "við" höfum nú yfirráð yfir þessari auðlind.
Og ef menn tala um "hið heilaga fullveldi" almennt þá þætti mér líka vænt um ef menn útskýrðu nákvæmlega hvaða fullveldi við myndum glata við að ganga í ESB, sem við höfum ekki þegar glatað með EES-samningnum.
Ég vonast í alvöru eftir skýrum, greinargóðum og skemmtilegum svörum - því ég verð að viðurkenna að ég skil ekki málflutning andstæðinga ESB.
Ekki fara samt með kvæði eftir Hannes Hafstein.
Blogg
HVAR ER ÞETTA FULLVELDI?
07:38 › 5. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
