Það er með miklu stolti og - já! - auðmýkt sem ég get tilkynnt að nú hefur litla bókaforlagið mitt, hann Skuggi, gefið út að nýju bókina Dagbók frá Diafani eftir karl föður minn, Jökul Jakobsson.
Þessi bók kom út fyrir 41 ári eftir að pabbi og mamma og við börnin höfðum dvalist tæpt ár á Grikklandi og þar af hluta af vetri í minnsta þorpi afskekktustu eyju Grikklands, Diafani á Kapaþos.
Ég var bara 6 ára en man heilmikið eftir dvölinni, enda mannlífið allt allt öðruvísi en ég hafði kynnst hér heima.
Í bókinni eru stuttir fallegir mannlífskaflar og þetta er held ég ótvírætt fallegasta og besta bókin hans pabba.
"Auðmýkt" sagði ég hér áðan, því í flestu því sem ég hef skrifað um dagana hef ég haft þessa bók sem meðvitaða eða ómeðvitaða viðmiðun.
Við gefum hana út í takmörkuðu upplagi í tilefni af 75 ára afmæli pabba sem var 14. september í haust.
Blogg
FALLEGASTA BÓK PABBA
13:26 › 5. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
