ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VIL ÉG DAVÍÐ AFTUR Í PÓLITÍK?

14:34 › 4. desember 2008


Tjásuklippari sem kallar sig "Rumsfeld" spyr mig í nýlegri tjásu hvort ég myndi styðja endurkomu D.Oddssonar í pólitík.

Best að reyna að svara því.

Í fyrsta lagi væri hér um bil hvað sem er til vinnandi til að losna við hann úr Seðlabankanum.

Því þar er hann aðhlátursefni fyrir útlendinga en efnahagslegt gereyðingarvopn fyrir okkur Íslendinga.

Svarið er sem sagt já, út frá þessum forsendum.

Í öðru lagi:

Pólitískt er mér alveg sama. Ég er á móti flestöllu sem D.Oddsson stendur fyrir um þessar mundir, en hann hefur að sjálfsögðu heimild til að berjast fyrir sínum hugsjónum. Ég óttast ekki að hann nái fylgi. Af hverju í veröldinni ætti einhver að kjósa þennan mann?

Svarið hér er já, já, því ekki það? En með nettum geispa.

Í þriðja lagi:

Persónulega vildi ég alveg vera laus við hann. Ég er búinn að eyða alltof miklum tíma af lífi mínu í að leiða hugann að hans valdapoti.

Svarið er: Æi, nei ...

Í fjórða lagi:

Á hann skilið að komast aftur til einhverskonar frama í íslenskri pólitík eftir "afrek" sín að undanförnu?

Hér er svarið ákveðið nei!

Í fimmta lagi:

Ef ég reyni að setja mig í hans spor, er augljóst að hann ætti að fara heim og hvíla sig vel og lengi. Helst undir sæng.

Svo að þessu leyti er svarið: Nei! Ekki aftur í pólitík!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?