ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

STIFTSTÍÐINDIN Á FJÓNI ERU SKEMMTILEGT MÁLGAGN

07:12 › 4. desember 2008


Ég ber djúpa og ákafa virðingu fyrir íbúum Fjóns í Danmörku.

Eigi að síður, þá hlýt ég að segja ...

... það er eitthvað skemmtilegt við að hinn mikli og ástsæli leiðtogi Davíð Oddsson skuli nota Stiftstíðindin á Fjóni til að tilkynna opinberlega að hann ætli að fara aftur út í pólitík ef honum verður ýtt út úr Seðlabankanum.

Lesendum Trésmiðjunnar kemur það vissulega ekki á óvart. Þessi stórmerka frétt birtist hér þann 4. nóvember.

Skemmtilegt er líka hvernig hinn mikli og ástsæli leiðtogi talar.

"Ég ætla ..." "ég vil ..."

Hvarflar auðvitað aldrei að honum að íhuga hvað annað fólk kunni að ætla eða vilja.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?