ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ORÐ ÞORGERÐAR KATRÍNAR: "HALTU KJAFTI OG VERTU ÚTI!"

09:17 › 4. desember 2008


Þorgerður Katrín segir að hún reikni með að Davíð geri það sem rétt er fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Þetta er furðuleg staðhæfing. Ef allt væri eðlilegt væri hún auðvitað hálfgerð árás á persónufrelsi Davíðs. Vitaskuld hefur hann frelsi til að hafa hvaða skoðun sem honum sýnist. Og gera það sem honum dettur í hug.

(Innan marka þeirra starfa sem hann gegnir, auðvitað!)

Og Sjálfstæðisflokkurinn er ekki heilög kýr sem fólki ber að laga skoðanir sínar að.

En þessari staðhæfingu er heldur ekki varpað fram í neinu eðlilegu ástandi.

Þvert á móti. Hana verður að skilja í ljósi þess fársjúka ástands sem verið hefur innan Sjálfstæðisflokksins svo lengi.

Auðvitað þýða orð Þorgerðar Katrínar í raun og veru: "Haltu kjafti og vertu úti!"

Og auðvitað hefði hún átt að segja það berum orðum. Eða svona nokkurn veginn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?