ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ZEITGEIST - ER KREPPAN SAMSÆRI??

16:08 › 3. desember 2008


Fyrst ég er búinn að auglýsa annað blaðið mitt í dag, þá er best að auglýsa hitt líka!

Í kvöld eða fyrramálið kemur nefnilega í búðir nýtt hefti af SKAKKA TURNINUM þar sem sérstaklega verður fjallað um kvikmynd sem fer nú eins og eldur í sinu um internetið, auk þess sem mig grunar að hún sé til á DVD í Laugarásvídeói og kannski víðar.

Þetta er heimildarmyndin Zeitgeist, þar sem fjallað er um upphaf peningakerfis Vesturlanda og því er beinlínis haldið fram að auðkýfingar hafi svarist í fóstbræðralag um að halda alþýðunni í þrælaböndum.

Höfundar Zeitgeist rekja sig um söguna og allt til 11. september og núverandi kreppu, og mörgum þykja dæmin sem þeir benda á - máli sínu til sönnunar - vera skelfilega sannfærandi.

Er kreppan nú vandlega "hönnuð atburðarás"?

Tekið skal fram að rannsóknarblaðamaður SKAKKA TURNSINS er ekki allsendis sannfærður um að Zeitgeist-höfundar hafi að öllu leyti rétt fyrir sér, eins og kemur fram í ítarlegri umfjöllun blaðsins, en það er best að leyfa fólki að kynna sér þetta sjálft.

Kápumyndina vann Jón Óskar Hafsteinsson upp úr frægu plakati sem gert var á 4. áratug 20. aldar og átti að sýna uppgang nasismans með hjálp alheimskapítalismans.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?