Ingibjörg Sólrún sagðist í gær vera hissa á því að ríkisstjórnin njóti ekki öllu meira trausts en George W. Bush.
(Hún nefndi ekki Bush. En fylgi ríkisstjórnarinnar í skoðanakönnunum er ekki ólíkt fylginu vestra við Dubya greyið - og öllum þykir hörmulega lélegt hjá honum!)
Ég bara trúi því varla að hún meini þetta.
Þá er hún alla vega eitthvað skyni skroppin.
Málið snýst nefnilega ekki eingöngu um einhverja "aðgerðapakka" sem ríkisstjórnin telur sig líklega eiga voðalegt hrós skilið fyrir að setja saman og leggja fram.
Þó sumir séu stórkostlega gallaðir.
Það verður til dæmis að verða fyrsta verkefni nýs þings að samþykkja nýtt eftirlaunafrumvarp þar sem eftirlaun silkihúfanna í samfélaginu eru algerlega sambærileg við eftirlaun okkar hinna.
En Ingibjörg Sólrún hlýtur að átta sig á því að þessi stjórn mun ALDREI geta notið trausts nema lítils minnihluta þjóðarinnar.
Umboð þessarar ríkisstjórnar er úti.
Blogg
INGIBJÖRG SÓLRÚN ER SVO HISSA!!
07:46 › 3. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
