ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ER EKKI SKÁRRA AÐ VINNA?

11:35 › 3. desember 2008


Kona að nafni Ruth hringdi í mig.

Hún bað um útreikninga á ýmsum hliðum uppsagna hjá fyrirtækjum.

Ef til dæmis er um að ræða ríkisfyrirtæki, þá borga jú atvinnuleysistryggingarnar 80 prósent af launum þeirra sem sagt er upp í sex mánuði.

Aðeins upp að vissu marki, reyndar, en við Ruth vorum bæði á því að flestallir þeir sem sagt hefur verið upp, t.d. hjá RÚV, fari varla upp fyrir það mark í launum.

Er virkilega ekki hagkvæmara, spyr Ruth, að láta þetta fólk halda áfram í vinnunni þessa sex mánuði með 80 prósent af laununum, en að senda það heim?

Það þyrfti kannski ekki einu sinni að lækka launin alveg um 80 prósent. Það mætti lækka laun þeirra hæstlaunuðu hjá viðkomandi stofnun eða fyrirtæki þannig að allir fengju t.d. útborguð 90 prósent af launum.

Ég kann ekki að reikna svona dæmi, en lofaði Ruth að koma þessu á framfæri.

Sömuleiðis vildi hún vita hvort ekki væri hagkvæmara fyrir atvinnuleysistryggingasjóð að borga fyrirtækjum atvinnuleysisbætur einstaklinga, en ekki þeim sjálfum.

Bæturnar ættu að fara beint til launa viðkomandi starfsmanns og fyrirtækið þyrfti þá ekki að borga full laun hans, heldur aðeins viðbótina sem þarf til að atvinnuleysisbæturnar teljist sómasamleg laun.

Gott væri ef reikningsfróðir lesendur upplýstu okkur Ruth um hin fínni blæbrigði svona reikningsdæma.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?