ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÆI, STEINGRÍMUR!

12:00 › 3. desember 2008


Steingrímur J. Sigfússon virðist verða ógurlega afundinn þegar minnst er á ESB.

Svona rétt eins og Davíð, Styrmir og Guðni Ágústsson.

Og Ólafur Ragnar Grímsson.

Nú mun hann hafa sagt einhvers staðar að ekki kæmi til álita að sækja um aðild að ESB fyrr en eftir kosningar, sem enginn veit hvenær verða.

Þótt Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og nú síðast Neytendasamtökin telji afar brýnt að sækja um sem allra fyrst.

Og meira að segja Ögmundur hafi tekið undir það.

Njaaaaa, nei, segir Steingrímur. Og hann fullyrðir að afstaða VG gegn ESB hafi harðnað að undanförnu.

Annars vegar séu VG-menn móðgaðir vegna hörku ESB í garð Íslendinga að undanförnu, eða þeirra "kynna sem við höfum haft af
þeim klúbbi að undanförnu".

Steingrímur ætlar bersýnilega að ganga í kór Davíðs, Styrmis og Guðna um hið vonda ESB sem eigi stóra  sök á okkar vanda.

Hins vegar segir hann að VG-menn séu í auknum mæli á móti ESB vegna "þess að margir sjá að leið Íslands út úr
kreppunni og vandanum liggur í gegnum okkar atvinnuvegi og sem mesta
verðmætasköpun út úr þeim“.

Kvótakóngarnir eiga sem sagt að bjarga okkur?!!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?