07:59 › 28. desember 2008
Horfði á svolítinn part af þætti á últra-hægri ströðinni Fox News í gærkvöldi. Þar voru sérfræðingar frá fjölmiðlum, ekki síst Wall Street Journal, að velta fyrir sér af hverju hefði farið svona illa í fjármálakerfi Bandaríkjanna.
Lýsingarnar á fífldirfsku, ofmetnaði, oflæti, purrkunarleysi, græðgi og yfirgangssemi hljómuðu ósköp kunnuglega.
Einn Wall Street Journal-maðurinn sagði að aldrei í sögunni hefðu jafn margir jafn gáfaðir menn hagað sér jafn heimskulega.
Þá er spurning hvort nokkuð eigi að kenna þá við gáfur.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
