ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

TRÉSMIÐJAN FER Í FRÍ

10:33 › 28. desember 2008


Nú þegar aðeins örfáir dagar eru eftir af þessu viðburðaríka ári, axla ég mín skinn og fer í frí frá bloggskrifum. Hversu lengi það verður, veit ég ekki enn.

Kannski stutt, kannski langt.

Ástæðan fyrir fríinu er fyrst og fremst sú að nú þarf ég að sinna því af festu að vinna fyrir mér. Bloggið átti aldrei að vera svona umfangsmikið né tímafrekt, en þegar maður byrjar að tjá sig, þá er erfitt að hætta á tímum sem þessum.

En á meðan hefur ýmislegt setið á hakanum.

Hugsanlega set ég inn áramótafærslu á miðvikudaginn kemur, ef ég ræð ekki við mig, en við sjáum til.

Ég þakka kærlega öllum mínum lesendum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?