Mér finnst eiginlega, sem sérstökum fjandmanni íslensku krónunnar, að sem flestir ættu að lesa þessa grein hans Benedikts Jóhannessonar um íslensku krónuna í Fréttablaðinu.
Benedikt harmar að við skyldum ekki hafa gengið í ESB (eða jafnvel tekið einhliða upp evru) fyrir nokkrum árum þegar öll skilyrði voru til þess. En þó við sitjum uppi með krónuna enn um sinn vill hann stefna beint í ESB.
Hann segir: "Það hefði ekki forðað íslensku bönkunum frá þroti þó að gjaldmiðill okkar hefði verið evra. En það hefði hins vegar forðað fjölda heimila og fyrirtækja frá því að fara í þrot."
Og bætir við:
"Kostirnir eru miklir:
1. Verðbólgan væri 3-4% en ekki 18-19%.
2. Vextir væru 2-8%, ekki 18-26%.
3. Lán sem fólk tók í fyrra hefði ekki tvöfaldast sem hlutfall af launum.
4. Viðskipti við útlönd væru eðlileg.
5. Útlendingar þyrftu ekki að vera hræddir við að festa fé á Íslandi.
Þeir sem töluðu með hæðnisrómi um að evran leysti ekki allan vanda höfðu vissulega rétt fyrir sér. En vandinn hefði verið mun minni en hann varð með krónunni."



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
